Skilmálar á áskriftarsamning
Samnings skilmálar þessir gilda frá 1. október 2019
Samnings skilmálar Stjörnusól kt. 421015-0740 (Sumarsól ehf)
Við hvetjum þig til þess að kynna þér vel skilmála áskriftarsamningsins. Slíkt fyrirbyggir misskilning og stuðlar að greiðum og
góðum samskiptum í framtíðinni. Eftirfarandi skilmálar gilda um áskrift að ljósanotkun hjá Stjörnusól og er bæði áskrifendum
og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum.
1. Stjörnusól veitir áskrifanda aðgang að ljósakorti sem áskrifandi er greiðandi að hverju sinni.
2. Stjörnusól leigir áskrifanda ótakmarkaða ljósatímanotkun í tólf mánuði, enn með hámarki 20 mín hvert skipti.
Áskrifanda er ekki heimilt að leyfa öðrum að nota áskriftina með því að selja, leigja, gefa eða láta hana af hendi með
öðrum hætti.
3. Stjörnusól býður upp á áskriftarsamninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig í tólf mánuði. Samningnum er ekki hægt
að segja upp innan samningstímabilsins. Áskriftarsamningur fellur úr gildi þremur mánuðum eftir að áskrifandi hefur
sagt honum upp. Nema um sé að ræða ótímabundin samning þá er uppsagnarfrestur 1 mánuður. Greidd áskrift er ekki
afturkræf. Áskrifandi greiðir mánaðarlega umsamda fjárhæð til Stjörnusólar á meðan samningur er í gildi.
Áskrift hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram.
Áskrifandi greiðir mánaðargjald skv. gjaldskrá Stjörnusólar fyrir afnot sín af einstaklingskorti. Stjörnusól er
heimilt að breyta mánaðargjaldinu með tilkynningu á www.solbadsstofa.is. Þó breytist
mánaðargjaldið ekki fyrstu 1, eða 12 mánuðina, eftir lengd samnings.
Stjörnusól er heimilt að flétta upp þeim sem gerast áskrifendur upp á vanskilaskrá creditinfo (Lánstraust hf).
Sé áskrifandi á vanskilaskrá getur Stjörnusól rift samningi þessum án frekari viðvarana- og/eða hafnað
nýskráningu hans.
Áskrifandi heimilar Stjörnusól að óska skráningar á vanskilaskrá Creditinfo Lánstraust hf. þegar vanskil hafa
varað í að minnsta kosti 60 daga, að öðrum skilyrðum uppfylltum.
4. Stjörnusól er eigandi ljósabekkjanna og ber áskrifanda að gæta þeirra og fara vel með þá.
5. Hætti áskrifandi að greiða áskrift áður en samningstíma lýkur skv. 3. gr. er Stjörnusól heimilt að stöðva ljósanotkun á
sólbaðsstofunni til áskrifandans. Áskrifandinn skal engu að síður greiða umsamið áskriftargjald út samningstímann
auk kostnaðar sem kann að hljótast af innheimtu þess.
Segi áskrifandi upp áskrift eða greiði hann ekki áskriftargjaldið eftir að samningstíma lýkur lokast og eyðist
kortið en ef um er samið áður en það lokast að þá er mögulegt að ræða sama samkomulag, annars gildir
verðskrá hverju sinni.
Uppsagnir skulu berast með þriggja (3) mánaða fyrirvara á 12 mánaða samning og eins(1) mánaða á “ótímabundnum” og skal vera sagt upp fyrir 15. þess mánaðar svo
uppsögn taki gildi næstkomandi mánaðarmót. ótímabundinn og 12 mánaða samningar endurnýjast sjálfkrafa hafi ekki
borist skrifleg uppsögn til Stjörnusólar á netfangið [email protected].(Ath til þess að uppsögn sé gild þarf hún að berast skriflega í tölvupósti)
6. Kjósi áskrifandi sem greiðir áskriftargjaldið reglulega, með greiðslukorti, beingreiðslu, eða boðgreiðslum að gera
breytingar á áskrift, hvort heldur er varðandi samsetningu áskriftar sem greitt er fyrir eða greiðslumáta
áskriftargjaldsins, ber honum að tilkynna slíkar breytingar til Stjörnusólar. Tilkynning þarf að berast eigi síðar en 13.
dag næsta mánaðar á undan þeim mánuði sem breytingunum er ætlað að taka gildi.
Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum er Stjörnusól heimilt, án fyrirvara, að stöðva notkun á
ljósakortinu til hans og krefjast tafarlausra greiðslu skaðabóta með innheimtuaðgerðum.
7. Innheimta korta/reikninga er í höndum Borgunar og Inkasso, eða aðila sem Stjörnusól ákveður og hefur til þess leyfi.
8. Skilríki ber að sýna í hvert skipti sem sólbaðstofan er sótt af viðskiptavini. Facebook prófíll gildir ekki sem skilríki. 18
ára aldurstakmark.
9. Óheimilt að leyfa þriðja aðila að nýta sér kortið með einhverjum hætti, og ekki er hægt að bjóða þriðja aðila með sér á
áskriftarkort.
10. Stjörnusól áskilur sér rétt til þess að breyta áskriftarskilmálum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta
kosti eins mánaðar fyrirvara á heimasíðunni stjornusol.is/hafnarfjordur
11. Með undirskrift sinni á áskriftarsamningi þessum skuldbindur áskrifandi sig til að hlíta skilmálum sem Stjörnusól
setur og fram koma í þessum samningi um aðgang áskrifanda að ljósakortinu.
12. Stjörnusól heitir áskrifanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem áskrifandi gefur upp í tengslum við
viðskiptin. Upplýsingar frá áskrifanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
13. Mál út af samningi þessum má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.